Guðbrandur Jónsson og kona hans Sigríður Margrét Sigurbjörnsdóttir bjuggu allan sinn búskap þar. Hann var bóndi frá 1898 til æviloka. Oddviti og sýslu- nefndarmaður í mörg ár, endurskoðandi kaupfélags, formaður búnaðarfélags og gegndi mörgum öðrum trúnaðarstörfum. Faðir hans Jón Markússon bjó á Spágilsstöðum frá 1844 og þar til hann dó 1888. Seinni kona Jóns var Guðríður Jónsdóttir og bjó hún þar til árið 1898. Eftir Guðbrand tók Markús sonur hans við búinu og var þar bóndi frá 1944 . |